Síða 1 af 2

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 17. Maí. 2007 23:20:05
eftir kip
Í samsetningu á Grísará er þessi Giant Big Stick frá Greatplanes.

Mynd
Glöggir menn geta séð einn góðan feil í samsetningunni sem hefur þó líklega lítil áhrif á flugeiginleikana.

Wingspan: 80.5 in (2045 mm)
Wing Area: 1518 sq in (97.9 dm2)
Weight: 13.0 - 15.0 lb (5900 - 6800 g)
Wing Loading: 20 - 23 oz/sq ft (61 - 70 g/dm2)
Length: 54.5 in (1385 mm)

Í hann fer Zenova 23cc bensínvél sem ég verslaði af Sverri.

2 stk. Futaba S3010 servo í rudder og elevator
5 stk. Futaba s3003 servo í aileron og flaps
Futaba R137F 7rása móttakari
Móttakarabatterý 4.8v AA Nimh Square Vapextech 2400mAh Measured at 140mA (0.2C) discharge. Max Discharge Current : 7,200mA (7.2 Amps) Max Charge Current : 1200mA

Þessi arfi kemur með möguleikum á bæði nefhjóli og taildragger og verður að velja taildragger útfærsluna ef nota á Bensínmótor eins og í þessu tilfelli.
Einnig verða flapsar notaðir

Heimasíða framleiðanda http://www.greatplanes.com/airplanes/gpma1224.html

Breytingar frá manualnum eru að flest öllu með tommumálum er skipt út með metramálum.
Dekkin sem fylgja eru úr svampi og sett gúmmídekk með lofti í staðin.

Greatplanes mælir með annaðhvor O.S. 1.60 FX Ringed w/Muffler glóðmótor, eða Fuji Imvac BT-32B 32cc, Fuji Imvac BT-32EI 32cc, Fuji Imvac BF-25EI 24.5cc 4-Stroke bensínmótorum og fylgir með krossviðarfestingarsett fyir Fuji en Gaui búddaði til krossviðarfestingu fyrir Zenovuna handa mér.

Næst er að festa pushrodda á vængservo, festa mótorinn í og throttluservo, festa bensíntakinn í og ganga frá móttakara, leiðslum og rafkerfi, jafnvægisstilla, stilla throw, flapsa og sendinn, fylla tankinn, taka myndir, setja í gang og fljúga :D

Einhvernvegin svona allavega ;)

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 17. Maí. 2007 23:43:33
eftir Clumsy feet
Þetta er mikið af húbbagalúbba sem ég skil ekki..

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 17. Maí. 2007 23:58:26
eftir kip
[quote=Clumsy feet]Þetta er mikið af húbbagalúbba sem ég skil ekki..[/quote]
Hvernig slappst þú út úr eldhúsinu???????

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 18. Maí. 2007 00:05:44
eftir maggikri
Flottur Kip. Velkominn í Big Stik hópinn. Big Stik er frábær vél. Ég er búinn að smíða 8 svona vélar frá grunni eina Big Stik 60 og 7 stykki Big Stik 40. Við erum flestir í FMS búnir að eiga svona vélar. Þessi er svolítið stærri. http://modelflug.net/myndir/displayimag ... m=1&pos=29


kv
MK

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 18. Maí. 2007 01:19:07
eftir Sverrir
Það var mikið að þú gerir eitthvað af viti ;)
Þú átt eflaust eftir að skemmta þér vel með þessari! Ég veit fátt skemmtilegra en að fljúga vélinni hans Gunnars :lol:

PS. Mæli með að þú styttir keðjuna í eldavélinni eða læsir tölvunni.

Mynd

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 18. Maí. 2007 07:43:48
eftir Steinar
[quote=kip][quote=Clumsy feet]Þetta er mikið af húbbagalúbba sem ég skil ekki..[/quote]
Hvernig slappst þú út úr eldhúsinu???????[/quote]
:lol: :lol: :lol: Góður.. Reddaðir deginum.. :lol: :lol: :lol:

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 18. Maí. 2007 13:50:33
eftir Björn G Leifsson
[quote=kip]Glöggir menn geta séð einn góðan feil í samsetningunni sem hefur þó líklega lítil áhrif á flugeiginleikana.[/quote]
Ha-ha... Rödderinn á hvolfi :?

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 18. Maí. 2007 16:16:25
eftir kip
Mikið rétt :) Ég hugsa að hann verði bara svona

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 18. Maí. 2007 17:24:20
eftir Sverrir
Endilega, ég var alltaf að berjast fyrir því að raðsmiðurinn hérna fyrir sunnan gerði eitt svona stél en það hefur ekki tekist ennþá. ;)

Re: Giant Big Stick frá Greatplanes

Póstað: 19. Maí. 2007 21:00:58
eftir Árni H
[quote=Björn G Leifsson][quote=kip]Glöggir menn geta séð einn góðan feil í samsetningunni sem hefur þó líklega lítil áhrif á flugeiginleikana.[/quote]
Ha-ha... Rödderinn á hvolfi :?[/quote]
Þessi vél verður hvort sem er flogið álíka mikið á hvolfi og á réttum kili :)