Enn mjakast fokkerar: Árni kíkti við í vikunni og setti efra skinnið á miðjuna. Nú er stór bunki af módeltímaritum á borðinu hjá mér og enginn þorir að hreyfa við honum fyrr en Árni kemur aftur:
Hann vildi líka gera eitthvað sem við Mummi höfðum ekki gert, svo þegar hann var búinn að skera hanapittinn úr skrokknum, þá klippti hann til framrúðu og stillti henni upp á sinn stað.
Nú er Mummi kominn í skreytingarnar. Hann reif niður fullt af 6mm Solartex ræmum sem hann síðan streujaði á vaænginn þar sem líklegt er að krossviðarsamskeytin væru:
Fokker D.VIII
Re: Fokker D.VIII
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Fokker D.VIII
Undan blaðabunkanum kom ágætlega límd vængmiðja.
Ég notaði freyðilím, sem virkar frábærlega við aðstæður sem þessar - mæli með því.
Mummi er á vængstiginu. Hann sprautaði vænginn og tautaði fyrir munni sér "Ich spritze, ich spritze..." dreyminn á svip.
Þegar hann sá að paparazzi FMFA fylgdist með greip hann til sinna ráða og sprautaði á myndavélina! (Þeir sem kunna að hreinsa málningu af myndavélum mega koma með góð ráð)
Græni liturinn er eiginlega of ljós. Endanleg útgáfa verður dekkri og svolítið veðruð. Myndir af því koma þegar ég verð búinn að hreinsa myndavélina... :rolleyes:
Kveðjur,
Árni H

[quote=Árni H](Þeir sem kunna að hreinsa málningu af myndavélum mega koma með góð ráð) [/quote]
Taktu hlífðarplastið frá, klikkar aldrei!

Icelandic Volcano Yeti
Re: Fokker D.VIII
Já, plastfilmutrixið klikkar ekki híhí
Re: Fokker D.VIII
Áfram var haldið að Grísará meðan slyddan lamdi skúrinn utan.
Í dag klæddi ég vængmiðjuna að neðan og fergði með módelblöðum:
Og byrjaði á vængendunum á meðan miðjan þornar í rólegheitunum:
Rifjunum raðað upp:
Fölsk frambrún límd á:
Og svo var heflað:
Gaui veðraði vænginn. Hann (vængurinn) er verulega flottur.
Mummi festist ekki á filmu sakir æðibunugangs við að maska og sprauta merkingar
neðan á vænginn.
Kv,

flottur
Kv. Guðjón Bergmann, s: 6690069
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur
Re: Fokker D.VIII
Árni setti engar myndir af Mumma í síðasta innleggi, en sem betur fer á ég alvöru myndavél og tók þessar:
Hérna eru Mummi og Árni að skoða málninguna á efra borði vængsins:
Mummi virðist vera ánægður með krossana sína:
Svo fór hann að maska neðra borðið:
Á meðan var Árni að skera göt í vængrifin sín. Honum datt í huga ð reyna að tefja smávegis fyrir Mumma með því að henda í hann því sem hann skar út. Það náðist á öryggismyndavél sem setti sjálfkrafa rauða ör til að sýna balsabútinn sem kastað var:
Ef þetta er ekki einelti, þá veit ég eki hvað !
Hérna eru Mummi og Árni að skoða málninguna á efra borði vængsins:
Mummi virðist vera ánægður með krossana sína:
Svo fór hann að maska neðra borðið:
Á meðan var Árni að skera göt í vængrifin sín. Honum datt í huga ð reyna að tefja smávegis fyrir Mumma með því að henda í hann því sem hann skar út. Það náðist á öryggismyndavél sem setti sjálfkrafa rauða ör til að sýna balsabútinn sem kastað var:
Ef þetta er ekki einelti, þá veit ég eki hvað !
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Fokker D.VIII
UFB = Unidentified Flying Balsa (skv. http://en.wikipedia.org)
Re: Fokker D.VIII
Ég prófaði að setja saman lítið vídeó sem lýsir því hvernig vængurinn á Fokker D VIII er veðraður. Þetta er svolítið kúl aðferð hjá baróninum af Grísará
Úps - smávilla í endanum sem fer í taugarnar á mér en kannski enginn annar tekur eftir... Laga hana seinna