Fokker D.VIII

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Öhh..... ætti ekki frekar að kalla þetta "að subba út" eða "að grísa út" í staðinn fyrir "að veðra" :D

Bara svona datt það í hug.

PS. hvað fæ ég fyrir að fatta villuna árni ;o?
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Já, skalamenn eru merkilegt fyrirbrigði. Byrja á því að gera þessi líka fínu módel og drulla þau svo viljandi út með alls konar djúphugsuðum trixum :D

Einn kaldur í ágúst, Björn?

Kv,

Árni H
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Árni H]Já, skalamenn eru merkilegt fyrirbrigði. Byrja á því að gera þessi líka fínu módel og drulla þau svo viljandi út með alls konar djúphugsuðum trixum :D

Einn kaldur í ágúst, Björn?

Kv,

Árni H[/quote]
Hljómar vel :D
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3683
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Gaui »

[quote=Árni H]Ég prófaði að setja saman lítið vídeó sem lýsir því hvernig vængurinn á Fokker D VIII er veðraður. Þetta er svolítið kúl aðferð hjá baróninum af Grísará :)[/quote]
Bara svona rétt til að skýra út, þegar Mummi dregur málningu upp á vænginn í lokinn, þá er aðferðin þessi: Úða vænginn fyrst með vatni úr úðabrúsa þannig að það sé vatn á honum, en þó að hann sé ekki "blautur", ef svo má að orði komast. Sîðan er sett smá málning í pensilinn (við vinnum nær eingöngu með vatnsleysanlega málningu) og hún þurrkuð í burtu með tusku eða pappasjaldi eða einhverju, þar til það kemur engin málning úr penslinum. Þá er pensillinn dreginn á vænginn eins og Mummi sést gera og þá kemur smá litur úr penslinum vegna þess að hann blotnar. Ef of mikið kemur, þá er hægt að þurrka það burt með pappír.

Málið er að gera lítið í einu. Það má alltaf bæta við, en erfitt að taka til baka.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
kristoferbt
Póstar: 6
Skráður: 20. Nóv. 2009 08:31:20

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir kristoferbt »

djöfull er þetta flott
kristo
Passamynd
Árni H
Póstar: 1586
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Árni H »

Það hefur gengið hálfhægt hjá mér að smíða Fokkerinn upp á síðkastið en þetta tommast þó áfram. Smíðinni sjálfri er að verða lokið og hægt að fara að huga að trebba og klæðningum.

Hér er skinnið komið neðan á annan vænginn (Mumminn rykbindur með úðabrúsa í baksýn):
Mynd

Mumminn er að klæða skrokkinn á sínum Fokker með solartexi:
Mynd

Það gerist líka fleira í skúrnum en Fokkerpælingar.

Gaui er að vinna í tvöföldu stéli Ercoupe (alltof mörg stél á einni vél og sést á svipnum):
Mynd

Á meðan Fokkervængurinn þornar byrjaði ég á næsta verkefni - meira um það síðar!
Mynd

Sveinbjörn fékk nýtt kit frá USU (minnir að hún heiti Lowwingydingybergy something) og byrjaði á stélinu:
Mynd

Yfir öllu vakir svo eftirlitsmyndavélin og balsaætan Surtur:
Mynd

Kveðjur,
Árni H
Passamynd
Gaui
Póstar: 3683
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Gaui »

Það kom stór og mikill kassi inn á Grísará merktur KÍNA. Hvað skyldi vera í þessum kassa?

Mynd

Nei, sko! Margir alla vega litir minni kassar í kassa!

Mynd

Mótorarnir fyrir Fokkerana eru komnir! og því sjálfsagt tilefni til að skála í guðaveigum: þrír CRRC 40cc mótorar og einn 26 cc.

Mynd

Er hann ekki fínn? Þessi á að fara í Ercoupe.

Mynd

En hvað er þetta. VARAHLUTIR? Það hefur greinilega eitthvað gleymst hérna.

Mynd

Árni byrjaði á því að athuga hvort hundurinn vissi eitthvað um þetta, en fékk fá og loðin svör.

Mynd

Það er þá líklega ekkert annað til ráða en að hella kaffi í bolla og lesa leiðbeiningarnar. Ughh! leiðbeiningar :(

Mynd

Þá er bara spurning, hvað þýðir setning eins og „Thank you for choosing our product, hoping that it can keep company with your degree over a pleased time.“?
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11507
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Sverrir »

[quote=Gaui]Þá er bara spurning, hvað þýðir setning eins og „Thank you for choosing our product, hoping that it can keep company with your degree over a pleased time.“?[/quote]
Ætli hún þýði ekki: ???????????????????????????
Þeir hafa sennilega látið Googa frænda um þetta. ;)

Skil vel að það sé gaman að smíða en var ekki óþarfi að kaupa líka smíðakitt af mótorunum? :)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
maggikri
Póstar: 5708
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir maggikri »

Eruð Þið Norðanmenn Hættir Í Glóðinni?
Kv
Mk
Passamynd
Kjartan
Póstar: 83
Skráður: 22. Nóv. 2008 01:44:20

Re: Fokker D.VIII

Póstur eftir Kjartan »

Til hamingju með mótorana piltar.

Þetta er sennilega nákvæm þýðing ??????????????????????????????

En fylgdi pakkninga og boltalím með???????

Kjartan.
Svara