Það kom stór og mikill kassi inn á Grísará merktur KÍNA. Hvað skyldi vera í þessum kassa?
Nei, sko! Margir alla vega litir minni kassar í kassa!
Mótorarnir fyrir Fokkerana eru komnir! og því sjálfsagt tilefni til að skála í guðaveigum: þrír CRRC 40cc mótorar og einn 26 cc.
Er hann ekki fínn? Þessi á að fara í Ercoupe.
En hvað er þetta. VARAHLUTIR? Það hefur greinilega eitthvað gleymst hérna.
Árni byrjaði á því að athuga hvort hundurinn vissi eitthvað um þetta, en fékk fá og loðin svör.
Það er þá líklega ekkert annað til ráða en að hella kaffi í bolla og lesa leiðbeiningarnar. Ughh! leiðbeiningar
Þá er bara spurning, hvað þýðir setning eins og „Thank you for choosing our product, hoping that it can keep company with your degree over a pleased time.“?
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði