Varðandi þessi litlu servó þá er mín reynsla að það borgar sig að kaupa traust servó í þesum klassa.
3D-frauðflugur eru með svo stor stýribörð að nælontannhjólin þola þa varla. Þau eru svo viðkvæm að bara smá krass burstar tennurnar úr venjulegum mikroservóum með nælontannhjól.
Ef maður notar svoleiðis servó í frauðflugur verður maður að kaupa
varatannhjól og treysta sér til að skipta um þau en það er hálfgerð úrsmíði, þetta er svo smágert.
Metal gear af góðu merki er málið þó þau séu dýrari í innkaupum hvert stykki. Veit ekki hvort Carbon gear servóin duga nógu vel en þau eru aðeins ódýrari sbr HS 65 servóin
http://hobbycity.com/hobbycity/store/uh ... 1g/0.14sec
Ég hef síðustu árin bara keypt Hitec servó. Þau hafa reynst mér framúrskarandi vel í öllum flokkum og það er einfaldara að kunna eina vörulínu. Þau hafa iðullega verið á tilboðum í amrískum netverslunum.