CARF Eurosport
Re: CARF Eurosport
Þetta er professional hjá þér Sverrir Snilld
Kv Gummi
Kv Gummi
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar
A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Re: CARF Eurosport
Þetta eru næstum því jafn flott tengi og við búum til á Grísará
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: CARF Eurosport
CARF mælir með að sett sé 25 gr. þynging í canard-ana til að hjálpa til við að jafnvægisstilla þá. Ég ákvað að fara í smá málmbræðsluleik með blýplötur sem ég átti.
Álpappír var vafið utan um viðardíl, málningarlímband og vírar voru svo notaðir til að hjálpa við að halda forminu.
Blýið sem ég náði að kaupa með herkjum í Ellingsen fyrir um áratug síðan.
Nokkrar plötur komnar í deygluna.
Allt að verða bráðið og flott.
Blýinu hellt í mótið.
Smá litur kominn á límbandið útaf hitanum.
Hér er svo stöngin þegar búið var að vefja utan af henni.
Eftir að búið var að snyrta stöngina þá var eftir 123mm bútur sem vóg um 65 gr.
Þá voru sniðnar til 45mm stangir til að fá rétta þyngd.
Rákir voru gerðar í blýið svo límið gripi betur í þær.
Svo er bara að bíða eftir að límið þorni.

Icelandic Volcano Yeti
Re: CARF Eurosport
Þetta er mjög flott hjá þér -- hefði þó viljað sjá lengri og ítarlegri myndbönd.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: CARF Eurosport
Hver veit hvað síðar verður, bjóst samt ekki við að blýbræðsla vekti mikla athygli.
Icelandic Volcano Yeti
Re: CARF Eurosport
Best að halda áfram að setja saman áður en árið klárast! Nú var komið að því að vinna í skrokknum, ákvað að byrja að ganga frá lúgunni enda stærsti einstaki verkliðurinn í skrokknum(í fermetrum talið).
Merkt fyrir pinnum á framhluta hennar.
Götin boruð.
Pinnunum var lyft upp svo þeir væri beinir.
Svo var vænn slurkur af lími settur á allt saman.
Sama var gert að aftan.
Læsingarpinnar koma aftast á lúguna.
Læsingarpinnunum var tyllt með sýrulími á meðan tryggt var að allt virkaði fínt og svo kom meira lím.
Krossviðskubbar settir innan á götin að framan og aftan til að fá aðeins meiri massa í þau.
Festingarnar sem halda vængjunum við skrokkinn voru svo límdar í leiðinni, ég keypti 5mm lengri bolta til að þeir fengju nóg hald, þeir sem fylgdu rétt náðu í gaddaróna.
Hér sést svo neðan á vélina, svona fær hún að vera í nótt á meðan límingin á vængfestingunum þornar.

Sverrir
Sé að við leggjum undir okkur hin ýmsu borð heimilisins undir smíði okkar
kv
Friðrik

Stofuborðin eru afar gagnleg til módelsmíða. Nú er Fokkerinn minn kominn á stofuborðið heima - þið megið giska einu sinni hver setur mestu pressuna á mig að ljúka málningarvinnunni!