Tómó

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Tómó

Póstur eftir Agust »

Ég kom við í Tómstundahúsinu áðan og kom það skemmtilega á óvart að sjá þar ýmsar nýjar vörur. Sem dæmi má nefna skanna fyrir 35 MHz, sjálfvirk hleðslutæki (NiCd, NiMh, Lipo), gíraða startara, mótora ýmisskonar, o.s.frv.
Ég hef ekki verið tíður gestur þarna, og getur vel verið að þetta séu ekki nýjar fréttir.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Gaui K
Póstar: 449
Skráður: 2. Maí. 2004 23:07:17

Re: Tómó

Póstur eftir Gaui K »

Já ég hef nú droppað þarna við öðru hverju og ég er sammála að þau eru búin að bæta sig nokkuð í vöruúrvali og verðið er ekki svo slæmt heldur.
Passamynd
benedikt
Póstar: 296
Skráður: 28. Feb. 2005 12:22:22

Re: Tómó

Póstur eftir benedikt »

þá er bara spurning um verðið :) ...ég spurðist nú um daginn um robbe Charter ..balsa trainer KIT ... ég smíðaði svoleiðist þegar ég var 13 ára ..og sá að verðið á honum hafði ekki greinilega ekki verið uppfært (frá '86) ...um 19 þús ef ég man rétt. Ég bað um að fá að prútta.. væri til í að borga max 5þús fyrir svona ... og það var hreitt í mig einföldu nei-i ...með major attitude!

- benni
If you ain't crashing, you ain't trying !
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Tómó

Póstur eftir Agust »

Ég er sammála Gauja um verðið. Það er ljóst að samkeppnin hefur sitt að segja.

Ég hef komið tvisvar í Tómó í sumar, og var það ekki fyrr en í annað skiptið að ég sá veggskáp frammi í búðinni með ýmsum áhugaverðum raftækjum, svo sem skanna og hleðslutækjum.

Það sem mætti bæta er sýnileiki smávaranna sem verið er að selja. Í ótal skúffum innan búðarborðs eru ýmsar gersemar sem enginn veit um og seljast því illa. Servó og þess háttar eru líklega niðri við gólf bak við gler búðarborðsins, þannig að leggjast þarf á hné til að skoða hluta úrvalsins.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Þórir T
Póstar: 837
Skráður: 17. Ágú. 2004 23:25:55

Re: Tómó

Póstur eftir Þórir T »

Jahá, menn eru greinilega farnir að örvænta eftir módelvörum... :-)
Benni, ég hefði nú líklega líka smellt þessu neii á þig í þeirra sporum, 5þ kall er nú allt að því dónalegt.. :-)
VAndamálið þarna er það að þessi dreng grey koma ekki frá sér því sem þeir þurfa að segja, muldra einhvað ofan í bringuna á sér...
Og það sem verra er, þeir virðast vera skíthræddir við eigandann... Ég er sammála Ágústi í því að þarna leynist ýmislegt góðgæti í skúffunum, verst er að hvorki þeir né við virðumst vita af því.
Svo þegar maður fer þarna út, þá líður manni alltaf eins og maður hafi verið að stela og hafi náðst.... :-Þ

mbk
Tóti
Passamynd
benedikt
Póstar: 296
Skráður: 28. Feb. 2005 12:22:22

Re: Tómó

Póstur eftir benedikt »

...tja.. ég komst nú ekki einusinni í að nefna verð.. ég spurði nú aðeins hvort ég fengi einhvern "smá" afslátt ;)
If you ain't crashing, you ain't trying !
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Tómó

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Ég hef fengið að gramsa í skúffunum hjá þeim og það er mesta furða hvað þar leynist.
Verðið hjá þeim er þó yfirleit í hærra lagi og sumt asnalega dýrt.
Hvað varðar "alvöru hluti" svo sem flugvélar, mótora, servó etc. þá hefur mér þótt fínt að versla við Þröstinn sem alltaf hefur reynst sanngjarn finnst mér.
Svo er maður kominn upp á lag með að panta á netinu sem líka hefur gengið slysalaust og stundum frábærlega.
Það má ná í spýtur, smáhluti og það sem til er í Tómó þegar manni liggur á en úrvalið hvað varðar flug er að takmarkað.
Fyrst og fremst vantar held ég flugdelluna bak við borðið í tómó svo þeir gætu orðið samkeppnishæfir. Þar ríkir krónísk bíladella... allt gott um það að segja.

Ef maður veit hvað maður vill og hefur tíma til að bíða eftir vörunni þá er alltaf hagstæðast að panta að utan... ekki satt?
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11681
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Tómó

Póstur eftir Sverrir »

Ekki alltaf ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
kip
Póstar: 564
Skráður: 24. Apr. 2006 13:44:49

Re: Tómó

Póstur eftir kip »

Persónulega finnst mér langbest að versla við Þröstinn.
Kristinn Ingi Pétursson
Netfang: kip[hjá]kip.is | vefsíður: www.kip.is og www.stafn.is | Sími: 650 5252
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Tómó

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=kip]Persónulega finnst mér langbest að versla við Þröstinn.[/quote]
Allavega persónulegast.... he-he... Jú ég er nú eiginlega sammála. Vantar bara "nálægðina" upp á síðkastið.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara