Steini, Anna og Þórður eru að sleikja sólina á Teneríf og að sjálfsögðu er flugmódel með í för! Klettar, brekkur, hamrar og klúbbar hafa verið heimsótt og mikið flogið í fínasta veðri, ekki leiðinlegt að vera léttklæddur með fjarstýringu í hönd!
Þau litu líka við hjá Club Aeromodelismo Tenerife en þeir eru með fínustu aðstöðu, 120x6 metra malbikuð braut, gámahús og geymsla.
Gaman að sjá þessar myndir frá ykkur. Það er aldeilis flott aðstaðan sem þeir hafa þarna.Það þarf ekki að vera í
Kraftgallanum.Stuttbuxur og bolur.
Kveðja.Árni F.
Ég var að rölta eftir ströndinni á Las Palmas um helgina og þar sá ég feðga fljúga bixler í flæðarmálinu í myrkri með led ljós á vængjum. Þetta var mjög töff.
[quote=Sverrir]Vélin fer kl.10:05 í fyrramálið en kostar 53.000... ef við bíðum til 1. mars þá er það ekki nema 22.000 út. [/quote]
Já og heim er seinni tíma mál.