Þegar stélið er komið á verður allt í einu svona "Eureka" móment - allt í einu er módelið farið að líkjast MiG-15
Smíðað á Grísará
Re: Smíðað á Grísará
Og enn eru þotur smíðaðar og nú er ekki langt eftir:
Flugmaðurinn í Vofuna kemur frá Danmörku og er greinilega ánægður með sig. Maverick hvað? Og svo er kúpan límd yfir hann. Þetta tekur langan tíma að harðna, svo ég gerði ekki mikið meira í kvöld. Árni byrjaði á að sparsla í rifu á Migunni og lengi vel héldum við að hann ætlaði ekki að gera neitt meira. Mummi skoðaði stýri og fann gamla rúllu með gulum dúk. Migan fékk fullt af lömum. Kokpitturinn í Veiðimanninum að taka á sig mynd. Mummi gaf þrívíddartálgun upp á bátinn og sagaði út prófíl af flugmanni úr þunnum krossviði. Á meðan setti Árni lamir í stélið á Migunni. Mummi að kíkja hvernig prófíllinn tekur sig út. Árni gagnrýninn að vanda. Stjórnklefinn tekur sig vel út og fíllinn passarundir hann. Þá er komið að því að setja smá lit á módelið. Þessi guli dúkur er ömmur flottur. Öll stýri komin á Miguna. Stélið er bara flott svona gult.

Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
Á þessum síðustu og verstu veirutímum koma kallar saman í skúrum, en halda fjarlægðum í löglegu llágmarki.
Vofan er að mestu tilbúin -- nú er bara að líma stýrin á.
Þá er hægt að athuga hvernig þau hreyfast. En, hörmung! hæðarstýrin hreyfast öfugt. Bara að það væri til tölvutækni sem lagar þetta.
Prófíllinn hans Mumma er kominn með lit og Veiðimaðurinn verður brátt tilbúinn fyrir hann.
Mummi klæðir Veiðimanninn með gulum dúk.
Og það eru gular dúklufsur út um allan skúr eftir hann. Þvílíkt og annað eins!
Árni er að setja servó í skrokkinn -- staðsetningin er sýnd á teikningunni og eins gott að fara eftir því.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
Enn er smíðað á Grísará. Mummi er enn að gera gult, svo það er engin mynd af honum, Árni er byrjaður að setja servó í Miguna. Hér sést gatið á annarri skrokkhliðinni fyrir servóið og krossviðarflísar sem hann ætlar að skrúfa í, því balsi heldur engu.
Það tók mig mjög langan tíma að tengja hraðastillinn (sem betur fer hafði ég merkt snúrurnar, þannig að aðdáandinn snýst rétt) og svo límdi ég hann við skrokkhliðina með stórri slummu af hitalími.
Nú er Vofan tilbúin til flugs, balgvaníseruð og vegin. Samkvæmt þessari mynd vegur vofan 614 grömm. Á teikningunni stendur 625, þannig að mér hefur tekist að halda mig innan marka.
Nú er bara að bíða eftir hinum þotunum og góðu veðri. Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
Þegar mætt er í skúrinn á sunnudagmorgni, þá er ekkert alltaf hlaupið í verkin. Kyrrðarstund með kaffibolla og símtóli er oft alveg eins góð.
Annars er Mummi fljótur að gera allt gult í kringum sig.
Vofan er tilbúin undir flug.
Svo ég þarf að gera eitthvað annað. Texan vængurinn skemmir sig ekki sjálfur!
Hér er Árni að spöggulera hvað hann á að gera næst. Það sést á svipnum og lyktin leynir sér ekki.
Mummi setur gult á eitt stýrið á Veiðimanninum.
Árni prófaði að klæða stýri á Migunni með silfurpappír, en straujárnið var líklega aðeins of heitt.
Flugklefinn á Migunni á að koma þarna.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
Hóhó róa sig! Ég var að leita að litasamsetningunni á Mig15
Re: Smíðað á Grísará
Þetta var mikið til kvöldið hans Árna: hann byrjaði í alvöru að klæða Miguna í silfurpappír (enda búinn að horfa upp á Vofuna í allri sinni dýrð).
Á meðan spögguleraði Mummi í því hvað hann ætti að gera.
Texanskrokkurinn var nægilegt verkefni fyrir mig, þar sem Vofan er tilbúin.
Árna gekk bara vel með silfurpappírinn.
Og Mummi þóttist vera bissí.
Þeir sáust meira að segja báðir á sama borði á tímabili. Ætli það sé keppni í gangi?
Á meðan pússa ég Texanskrokk. Ég held að hann verði einhverntíman sléttur og fínn.
Árni málaði "svart" inn í loftinntakið hjá sér.
Og þá þurfti Mummi að gera það líka.
Ætli afturbrennarinn sé í gangi?
Þessi silfurpappír kemur alls ekki illa út.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
Það voru þrjú járn á lofti þetta kvöldið.
Árni er langt kominn með silfur pappírinn á Miguna. Nú vantar bara rautt. Eða blátt. ... eða ...
Veiðimaðurinn er orðinn gulur og þá þarf að skoða merkingar og flugmannsklefa og svoleiðis.
Ég notaði tækifærið og klæddi Enga furðu.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði