Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3765
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 16

Dagurinn byrjaði á tiltekt á verkstæðinu: dót sem ég átti þarna niðurfrá og hafði lítið hlutverk þar, var tekið, sett í bílinn og flutt heim í kjallarann, þar sem því ferður komið fyrir eða fyrirkomið eftir atvikum.

Ég ákvað að reyna að byrja á vængjunum og til þess þurfti ég að búa til 11 framrif á hvorn væng, sem ekki fylgja með í kittinu og eru ekki sýnd á teikningunni. Það er ljóst af myndum og teikningum og slíku að það eru framrif á milli vængrifjanna á Taylorcraft Auster, svo ég verð að búa þau til og líma þau á sína staði.
20241226_105121.jpg
20241226_105121.jpg (135.53 KiB) Skoðað 88 sinnum
Næst þurfti ég að framlengja vængbitana. Þeir eru fjórir. Efnið sem ég fékk er 914mm eða þar um bil en þeir þurfa að vera rúmlega 1200mm.
20241226_110335.jpg
20241226_110335.jpg (138.08 KiB) Skoðað 88 sinnum
Ég skar efri afturbrún og flapsa úr 1,5mm krossviði. Ég hugsa að ég geri neðri afturbrúnina úr balsa, en ég á nægan krossvið sem ég get notað í hana. Neðri afturbrúnin verður ekki nema 10mm eða svo fyrst ég ætla að setja flapsa.
20241226_112802.jpg
20241226_112802.jpg (139.44 KiB) Skoðað 88 sinnum
Ég skar neðan úr fimm rifjum no. 2 fyrir flapsanum. Rifin eru gerð úr léttkrossviði og auðvelt að skera þau með beittum hníf.
20241226_115103.jpg
20241226_115103.jpg (143.81 KiB) Skoðað 88 sinnum
Nú get ég byrjað að máta rifin á rétta staði.
20241226_120542.jpg
20241226_120542.jpg (142.28 KiB) Skoðað 88 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3765
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 17

Þá er ég byrjaður að raða vængnum saman og allt virðist ætla að ganga upp.
20241227_100930.jpg
20241227_100930.jpg (148.16 KiB) Skoðað 46 sinnum
En, þegar kom að hallastýrinu var ekki allt eins og það átti að vera. Hallastýrisbitinn (3mm léttkrossviður) og rifin fyrir framan hann pössuðu engan veginn saman. Ég lagðist í hux og spögguleringar og var jafnvel kominn á þá skoðun að ég þyrfti að búa til ný rif, þegar ég uppgötvaði að það var bitinn sem var ekki réttur. Raufar fyrir rifin eru skornar í ranga átt. Í staðinn fyrir að vera neðan á bitanum, þá eiga þær að vera ofan á honum, og það sem eru raufar er það sem á að vera eftir þegar búið er að gera raufarnar.
20241227_111556.jpg
20241227_111556.jpg (134.33 KiB) Skoðað 46 sinnum
Ég sagaði út nýja bita og þá ganga rifin og bitinn svona saman:
20241227_111805.jpg
20241227_111805.jpg (144.62 KiB) Skoðað 46 sinnum
Þá gat ég lagt niður restina af rifjunum með nýja hallastýrisbitann eins og hann á að vera..
20241227_115528.jpg
20241227_115528.jpg (143.43 KiB) Skoðað 46 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3765
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 18

Ýmis smáverk við vænginn í dag: Ég lokaði vængnum og styrkti hann fyrir framan flapsann með 5mm balsa.
20241228_110400.jpg
20241228_110400.jpg (141.75 KiB) Ekki skoðað enn
Ég setti smárif frá frambrún að vængbita og límdi svo balsa framan á frambrúnina. Teikningin segir mér að setja 2,5mm balsaplötu á frambrúnina, en frumgerðin er ekki þannig lokuð. Það sést, hins vegar, mjög greinillega að það eru stutt rif á milli heilrifjanna og ég ætla að gera það þannig. Hugsanlega þarf ég að styrkja vænginn á einhvern máta, en við komum að því síðar.
20241228_113324.jpg
20241228_113324.jpg (145.57 KiB) Ekki skoðað enn
Ég setti hallastýrið saman. Nú þarf bara að pússa það til og forma frambrúnina á því.
20241228_120842.jpg
20241228_120842.jpg (144.46 KiB) Ekki skoðað enn
Ég var lengi að finna út hvar þessir sveigar eiga að koma. Ég meira að segja spurði hönnuðinn, Jerry Bates, en hann mundi ekkert hvar. Svo kom þetta í ljós. Þetta eru vængendarnir! sá þykkari ofan á hluta TC og sá þynnri undir.
20241228_120901.jpg
20241228_120901.jpg (142.82 KiB) Ekki skoðað enn
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara