Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 64

Ég sagaði tvær festiplötur úr 2 mm áli og gerði svo raufar upp í stífurnar sem þær skorðast í.
20250319_105622.jpg
20250319_105622.jpg (141.31 KiB) Skoðað 6425 sinnum
Svo tók ég stífurnar í nokkurn vegin rétta lengd samkvæmt teikningunni og setti kúlutengin í efri enda þeirra. Ég er ekki búinn að líma neitt fast og þarf að stilla upp skrokk og vængjum með réttan aðhalla (díhedral) áður en ég sulla epoxýi á þetta allt saman
20250319_113302.jpg
20250319_113302.jpg (144.41 KiB) Skoðað 6425 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 65

Ég skolaði af vængjunum með rauðspritti og sprautaði svo grunni á annað borð beggja vængja, hallastýra og flapsa. Einhverra hluta vegna tók ég ekki mynd af þessu, en get sett inn mynd á morgun þegar ég sprauta hinum megin.

Ég bjó til tvö ný rif í vélarhlífina. Ég notaði rif C-3 sem grunn og mjókkaði þau aðeins og lækkaði.
20250320_113014.jpg
20250320_113014.jpg (143.37 KiB) Skoðað 6280 sinnum
Svo byrjaði ég að raða rifjunum upp á nefið á módelinu.
20250320_115458.jpg
20250320_115458.jpg (141.68 KiB) Skoðað 6280 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 66

Búinn að sprauta grunni á hitt yfirborðið á vængjunum. Núna mundi ég eftir að taka mynd.
20250321_093158.jpg
20250321_093158.jpg (137.52 KiB) Skoðað 6259 sinnum
Ég hélt áfram að raða saman vélarhlíf. Ég setti hreyfilinn í og bjó til nýjan nefhring á hann (sá sem fylgdi var of lítill). Svo stillti ég upp rifjunum með balsa kubbum og geri ráð fyrir 40 mm bili frá fremsta rifi að nefhringnum. Til að stífa hlífina af klæddi ég með 2 mm balsa utan á hana. Að lokum mun ég klæða hlífina með 0.8 mm krossviði.
20250321_120523.jpg
20250321_120523.jpg (142.15 KiB) Skoðað 6259 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 67

Dundaði mér í morgun við að líma 40 millimetra af balsa framan á vélarhlífina. Ég þurfti að skera innan úr hverju lagi til að rekast ekki í hreyfilinn. Nú má þetta þorna til morguns, en þá get ég skorðið þetta til og sett restina af 2m mm klæðningunni á. Á meðan þarf ég að velta fyrir mér hvernig ég festi hlífina framan á módelið.
20250324_110255.jpg
20250324_110255.jpg (135.32 KiB) Skoðað 5367 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 68

Lokaði vélarhlifinni og formaði framhlutann (að mestu). Þetta er svona nokkurn veginn komið, en gæti rúnnast meira. Sjáum til.
20250325_114437.jpg
20250325_114437.jpg (141.21 KiB) Skoðað 4600 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 69

Aðal verkfærin sem notuð eru þegar maður fínpússar svona væng eru fingurnir, sem finna misfellur, straujárn til að strauja niður kanta sem eru lausir, P400 sandpappír til að slétta grunninn og kaffi til að hressa sig við og við.
20250326_094114.jpg
20250326_094114.jpg (140.65 KiB) Skoðað 3524 sinnum
Ég festi hreyfilinn endanlega með gaddaróm á mótorfestinguna.
20250326_114917.jpg
20250326_114917.jpg (144.58 KiB) Skoðað 3524 sinnum
Ég ætlaði að byrja á innviðum í flugklefanum með því að búa til framsætið, en af inhverjum orsökum haði ég prentað þetta út um 12 til 15 millimetrum of mjótt. Ég verð að reyna aftur.
20250326_120109.jpg
20250326_120109.jpg (139.18 KiB) Skoðað 3524 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3822
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 70

Ég ætlaði að grunna skrokkinn og byrjaði á því að sprauta innan í flugklefann. Svo kom í ljós að ég átti ekki mikið af þeim grunni sem ég vil helst nota. Ég vil helst nota ACE Premier Primer (sem er frekar dökkur) eða ColorMatic Ik Grunder, sem er meðalgrár. Þessar dósir kláruðust, svo ég prófaði Belton Basic Universal Grund sem ég keypti fyrir nokkrum vikum.
20250401_113502.jpg
20250401_113502.jpg (145.61 KiB) Skoðað 614 sinnum
Í stuttu máli, þá er þetta hræðilegur grunnur, sem lekur við minnsta tilefni. Ég nota hann ekki meira. Eins og hinir tveir eru góðir, þá er þessi alveg hræðilegur. Getur einhver sagt mér hvers vegna verslanir hætta að selja dót sem manni líkar vel og pranga í staðinn algerlega ónothæfu rusli sem maður getur engan veginn notað?
20250401_113712.jpg
20250401_113712.jpg (138.74 KiB) Skoðað 614 sinnum
Þá er komið að bekknum sem flugmaðurinn situr á. Ég prentaði hann út í réttri stærð og sagaði út úr 1,5 mm krossviði.
20250401_093300.jpg
20250401_093300.jpg (132.42 KiB) Skoðað 614 sinnum
Svo notaði ég grillpinna úr bambus til að búa til stólgrindina og setti sæti fyrir flugmanninn. Það er ekkert sæti hægra megin, því þetta var sjúkraflugvél og þarna var pláss fyrir börur eða legpláss fyrir sjúklingana. Það var sæti fyrir aftan flugmanninn fyrir lækni eða sjúkraliða, sem sá um að sjúklingurinn lifði flugferðina af.
20250401_113831.jpg
20250401_113831.jpg (137.67 KiB) Skoðað 614 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara