Eitthvað var um kaup og sölu fyrir norðan og þessi litli Engill datt í hendurnar á mér í staðinn fyrir Extra 300 sem hefur stytt mér stundir síðustu mánuði en dvelur nú um stundir fyrir norðan með nýja gamla eigandanum.
Að venju er samsetningin á þessum rafmagnsvélum frekar þægileg og svo sem ekki mikið að segja frá á þeim kantinum. Ætli það hafi ekki farið svona 5 tímar í samsetninguna.
Vænghaf: 159 cm
Lengd: 166 cm
Þyngd: 2.2 kg
Vel gengið frá öllu í kassanum.
Gamla góða lamatrixið var notað.
Slípa þarf hornin svo límið bindi sig betur við þau.
Segulstál kemur í góðar þarfir, ath. nóg að strjúka því eftir skrúfjárninu.
Hacker A50-16S er frekar verklegur mótor.
Voila!
Angel S Evo 50E frá SebArt
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
Icelandic Volcano Yeti
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
Veit það nú ekki Þetta er #2 á svæðinu en eina núverandi.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
Svona lítur Engilinn út í dag og svona leit hún út í frumfluginu fyrr í kvöld. Verð að játa að ég var búinn að gleyma hvað þetta eru stöðugar og skemmtilegar flugvélar. Algjör draumur að fljúga!
Af einhverjum ástæðum tók ég lítið af flugmyndum en hver veit nema Maggi eigi eitthvað vídeó af henni.
Af einhverjum ástæðum tók ég lítið af flugmyndum en hver veit nema Maggi eigi eitthvað vídeó af henni.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
Katana og Angel á Arnarvelli í kvöld. Næstum því jafn stórar
Icelandic Volcano Yeti
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
Maggi tók nokkrar vídeóklippur af Englinum fyrr í vikunni.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
Hvernig rafhlöðu ertu með og hve lengi getur þú flogið?
Fallegur gripur.
Fallegur gripur.
Re: Angel S Evo 50E frá SebArt
[quote=PattRat]Takk fyrir þetta Sverrir. Ekkert skemmtilegra en að sjá alvöru pattern ship í æfingum.[/quote]
Jú að fljúga því
[quote=Agust]Hvernig rafhlöðu ertu með og hve lengi getur þú flogið?
Fallegur gripur.[/quote]
Takk. Mest með 6 sellu 3700 mah.
Ég er kominn upp í 12 mínútur og þá er ég að taka rétt rúmlega 2000 mah út þannig að miðað við að taka ekki nema 80% af rýmdinni þá er ég sennilega að fara vel yfir 15 mínúturnar en það kemur betur í ljós í næstu flugum.