Í dag fórum við fjórir Smástundarmenn með Piper Cub Munda og Redy-2 Guðjóns. Markmiðið var að fara í langferð sem var farin frá mjólkurbúi Selfoss og ekið niður Gaulverjabæjarhrepp (vegnúmer 33 ). Það komu reyndar fljótlega upp einhverjar truflanir hjá Munda og Veigari og urðu þeir að hætta eftir að hafa laskað Cubin lítilsháttar. (JR)

En allavega þá gátum við Alex haldið áfram og flugum í 40 mínútur og kláruðum um 40 km. í það heila, þ.e.a.s. við stoppuðum einu sinni til að tanka, vélin varð bensínlaus, reyndar á besta stað þar sem hægt var að lenda á rennisléttu túni!
Þar var tankað og flogin seinnihluti af leiðinni, við enduðum við afleggjara inn á þjóðveg 1, á afleggjara inn í Villingaholtshrepp (vegnúmer 305). Veðrið lék við okkur og gaman verður að gera aðra tilraun seinna. eftir á að hyggja væri betra að vera 3 í hverjum bíl, einn að fljúga einn að keyra og sá þriðji tekur myndir.